Jólin byrja í kósý

Í faðmi fjölskyldunnar

Finndu náttföt fyrir stóra og smáa.

Joe Boxer á Íslandi

Joe Boxer hefur átt fastan sess hjá Íslendingum í yfir 20 ár. Nærfötin og þægilegu heimafötin hafa fylgt okkur í gegnum hversdaginn, notalegar stundir heima og ótal jól.

Sagan á Íslandi hófst þegar íslenskur hönnuður flutti vörumerkið hingað frá Bandaríkjunum eftir að hafa búið þar seint á tíunda áratugnum. Hönnunin okkar verður til hjá íslenskum hönnuði og einkennist af litagleði, leikandi mynstrum og hinum sívinsæla broskalli.

Í gegnum árin höfum við tekið á móti viðskiptavinum í verslunum okkar á Skólavörðustíg, í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi. Nú leggjum við áherslu á netverslunina, þar sem þú getur áfram fundið þínar uppáhaldsvörur frá Joe Boxer, hvar sem þú ert á landinu.